Kringlukráin er lifandi veitingahús, þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu og góðan mat. Allt frá opnun staðarins árið 1989 hafa vinsældirnar aukist jafnt og þétt. Þar fer saman klassískt yfirbragð og létt andrúmsloft í hádeginu, á kvöldin og um helgar.
Lærðu meira um okkur eða vertu í sambandi ef að þú vilt spyrja að einhverju.
Opnunartími
Á döfinni:
Kringlukráin var opnuð fyrir gestum á bjórdaginn, 1. mars árið 1989. Fyrst um sinn var hún einungis hugsuð sem krá með léttan skyndibita en hefur síðan þróast yfir í veitingahús með fjölbreyttan og vandaðan matseðil, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Við leggjum áherslu á að skapa vinalegt og fjölskylduvænt andrúmsloft, þar sem ungir jafnt sem aldnir ættu að njóta sín.
Leikhúsgestir
Kringlukráin býður leikhúsgestum upp á vandaða tilboðsmatseðla öll sýningarkvöld Borgarleikhússins fyrir leiksýningar.
Æskilegt er að gestir sem eru á leið í leikhús og ætla að nýta sér þessa þjónustu, panti borð tímanlega og komi í mat helst ekki seinna en kl. 18 svo að hægt sé að vanda vel alla framsetningu bæði í þjónustu,
mat og drykk.
Eftir sýningar gildir leikhúsmiðinn einnig sem aðgöngumiði á dansleik helgarinnar.
Einkasamkvæmi, Fundir, Ráðstefnur
Í hliðarsalnum okkar bjóðum við til viðskiptavinum afnota skjávarpa, hljóðkerfi, öll afspilunartæki og ræðupúlt. Þar af leiðandi hentar hann vel fyrir námskeiðahald og fyrirlestra. Kostur er á hverskonar sætauppröðun og margvíslegum veitingum.
Hliðarsalurinn er einnig kjörinn fyrir einkasamkvæmi. Hægt er að velja um sitjandi eða standandi samkvæmi. Staðurinn hefur á að skipa frábærum kokkum og vinalegu þjónustufólki. Við tökum að okkur að skipuleggja boð og samkvæmi ef óskað er. Þá setjum við saman sérstakan veislumatseðil; smárétti, hlaðborð eða sérstaklega framreiddan mat.
Sjá má fleiri myndir af hliðarsalnum með því að smella á myndina hér fyrir neðan.
Á Kringlukránni er haldið í hefðirnar og gestum komið skemmtilega á óvart með íslenskum kræsingum á tyllidögum. Meðal annars Þorláksmessuskötu, þorramat, saltkjöt og baunir o.fl.
Skemmtanir
Kringlukráin er fyrirtaks staður til tónleikahalds. Allar helgar í áraraðir höfum við boðið upp á dansleiki um helgar, þar sem margar af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar hafa stigið á svið í gegnum árin. Dagskrá næstu helga má finna á dagatalinu hér efst á síðunni.
Umsagnir
Heimilisfang
Kringlukráin Kringan 4 - 12 103 ReykjavíkSímanúmer
+354 568 0878Netfang
kringlukrain(@)kringlukrain.isKort
Smellið á myndina hérna fyrir neðan til þess að sjá kort í fullri stærð
Hér tökum við á móti borðapöntunum, fyrirspurnum eða hvers konar skilaboðum. Við bendum gestum á að einnig er hægt að hafa samband í gegnum símanúmerið sem birtist hér til vinstri.

Hljómsveitin Upplyfting ásamt Ara Jónssyni
Geirmundur Valtýrson
kr. 2.190
kr. 2.190