Leikhúsgestir á Kringlukráinni
Kringlukráin býður leikhúsgestum upp á vandaða tilboðsmatseðila
öll sýningarkvöld Borgarleikhússins fyrir leiksýningar.
Tilboðsmatseðlar eru aldrei búnir til fyrr en samdægurs eða í fyrsta lagi daginn áður, þetta er vegna þess að við leggjum metnað okkar í að bjóða aldrei annað en ferskasta hráefni sem völ er á hverju sinni. Hringið inn til okkar til að fá upplýsingar.
Pantið borð tímanlega
Gott er að gestir sem eru á leið í leikhús og ætla að nýta sér þessa þjónustu, komi tímanlega í mat eða helst ekki mikið seinna en kl.18:00 svo að hægt sé að vanda vel alla framsetningu bæði í þjónustu, mat og drykk.
Kringlukráin er metnaðarfullt veitingahús, sem vill standa sig vel.
Allar helgar heldur Kringlukráin dansleiki með bestu hljómsveitum landsins.
Eftir sýningar gildir leikhúsmiðinn sem aðgöngumiði á helgardansleiki Kringlukráarinnar, nema í sérstökum tilfellum.
Pantanasími 568-0878 alla daga milli kl. 09:00 til 17:00
sendu okkur tölvupóst